Sinopsis
Judith Rashleigh lifir nú við velsældir í Feneyjum. Þetta er lífið sem hún var tilbúin til að drepa fyrir. En einhver veit hvað hún hefur gert.
Eina leiðin til að bjarga sér er að finna ómetanlegt málverk - gallinn er sá að hún er ekki viss hvort það sé til. Og hún er ekki sú eina sem leitar að því.
í þetta skipti er Judith ekki við stjórnvölinn. Hún er gjörsamlega yfirbuguð af óvini sem er miskunnarlausari og valdameiri en hana hefði nokkurn tíma grunað. Og ef hún hefur ekki yfirhöndina, á hún á hættu að tapa lífinu.
Maestra Trílógían
Maestra-trílógían er röð erótískra spennusagna eftir L.S. Hilton, sem er höfundarnafn Lisu Hilton. Serían samanstendur af bókunum Maestra (2016), Domina (2017) og Ultima (2018). í bókunum segir frá Judith Rashleigh sem starfar við uppboðshús í London, en missir vinnuna í kjölfar samsæris sem sendir hana á flótta í heim glæsimennsku, glæpa og blekkinga.
Serían hefur selst í yfir milljón eintökum um allan heim og í vinnslu er kvikmynd sem byggir á henni.
L.S. Hilton er höfundarnafn Lisu Hilton, sem er breskur sagnfræðingur, blaðamaður og metsöluhöfundur. Fyrir utan Maestra-trílógíuna, hefur hún skrifað fjölda sögulegra skáldsagna og ævisagna um sögulegar persónur. Megin innblástur hennar kemur frá áhrifamiklum konum í gegnum mannkynssöguna. Lisa Hilton hefur starfað sem sjónvarpskynnir, skrifað fjöldann allan af handritum fyrir sjónvarp sem og greinar í ýmis blöð og tímarit. Hún skrifar á ítölsku, frönsku og ensku, hefur m.a. ritað greinar í tímaritin Vanity Fair, Elle og Times og hefur unnið til nokkurra verðlauna fyrir greinaskrif sín. Lisa ólst upp í Norður-Englandi, en hefur búið víða, meðal annars Flórens, París, New York, Mílanó og London.
Escucha tu audiolibro desde cualquier dispositivo
Ficha Técnica
Leído por: Vera Kristinsdottir
Editorial: Saga Egmont
ISBN: 9788727311425
Idioma: Islandés
Fecha de lanzamiento: 01/05/2026
Especificaciones del producto
Recibe novedades de L.S. Hilton directamente en tu email
Reseñas sobre Domina
Comparte tu experiencia con la comunidad lectora.
0 Reseñas
Sólo por opinar entras en el sorteo mensual de tres tarjetas regalo valoradas en
20€