Sinopsis
„Gömul sár, flekkuð fortíð og flókin fjölskyldusambönd“
Þrátt fyrir að Kinsey Millhone sé enn að jafna sig eftir síðasta sakamál, vekur beiðni Royce Fowler áhuga hennar undir eins. Royce trúir því að sonur hans, Bailey, hafi verið ranglega dæmdur fyrir morðið á kærustu sinni sautján árum áður. Fljótlega eftir dóminn tókst Bailey að strjúka sporlaust úr fangelsi og síðan hefur ekkert til hans spurst fyrr en nú. Fyrir einskæra tilviljun er Bailey komin undir smásjá yfirvalda á ný og þráir Royce ekkert heitar en að gera upp flekkaða fortíð sonar síns. Mun Kinsey takast að græða gömul sár og skrifa nýjan endi á söguna?
Sue Grafton (1940-2017) var amerískur rithöfundur. Hún ólst upp í Louisville og fetaði ung í fótspor föður síns sem sjálfur skrifaði glæpasögur. Áður en Grafton fann rödd sína sem skáldsagnahöfundur starfaði hún við gerð kvikmyndahandrita. Ferill hennar fór seinna á flug þegar stafrófsbækurnar um einkaspæjaran Kinsey Millhone litu dagsins ljós. Grafton var afkastamikill og vinsæll glæpasagnahöfundur sem hlaut fjölmargar viðurkenningar á ferli sínum.
Escucha tu audiolibro desde cualquier dispositivo
Ficha Técnica
Editorial: Saga Egmont
ISBN: 9788727157511
Idioma: Islandés
Fecha de lanzamiento: 10/10/2024
Especificaciones del producto
Recibe novedades de Sue Grafton directamente en tu email
Reseñas sobre F eins og í flótti
Comparte tu experiencia con la comunidad lectora.
0 Reseñas
Sólo por opinar entras en el sorteo mensual de tres tarjetas regalo valoradas en
20€